Einkenni ME
Einkennandi fyrir sjúkdóminn eru svokölluð PEM köst (post exertional malaise) þegar einkenni versna eftir líkamlegt, félagslegt eða andlegt álag.
Önnur helstu einkenni eru yfirþyrmandi þreyta eða örmögnun, oft í kjölfar andlegrar eða líkamlegrar áreynslu; svefntruflanir, verkir, minnistruflanir, viðkvæmni gagnvart ljósi, snertingu og hljóði. Erfiðleikar við að standa lengi og stundum jafnvægistruflanir, óregla á líkamshita og líkamsþyngd. Flensulík einkenni sem vara að minnsta kosti í sex mánuði hjá fullorðnum eða þrjá mánuðu hjá börnum.
Virkniaðlögun
betra líf með ME
Bókin er gagnleg öllum þeim sem kljást við veikindi sem valda miklu orkuleysi og þreytu sem og þeim sem eru með langtíma Covid, en er skrifuð sérstaklega með ME sjúklinga í huga.
Virkniaðlögun hjálpar fólki að stjórna daglegu lífi svo það örmagnist síður og nái þannig að lifa fyllra og meira gefandi lífi.
Fréttir
Útgáfuhóf bókarinnar, Akureyrarveikin – Reykjavík
Fullt var út úr dyrum í sal Læknafélags Íslands í gær 5. september þegar ný bók Óskars Þórs Halldórssonar, Akureyrarveikin, var kynnt. Erindi fluttu auk…
Útgáfuhóf bókarinnar Akureyrarveikin
Útgáfuhóf bókarinnar Akureyrarveikin eftir Óskar Þór Halldórsson var haldið föstudaginn 29. ágúst á Akureyri. Viðburðurinn var vel sóttur og fluttu þar ávörp, höfundur sjálfur, læknarnir…
Sýnin fundin!
Sýni sem fundust á Landspítalanum gætu svipt hulunni af ástæðum Akureyrarveikinnar Sýni sem nýlega komu í leitirnar á Landspítalanum eru talin geta varpað ljósi á…
Næstu viðburðir
Flotmeðferð – djúpslakandi meðferð fyrir fólk með ME eða langvarandi einkenni Covid
ME félag Íslands býður félagsmönnum upp á prufutíma í flotmeðferð í samstarfi við Flothettu. Meðferðin fer fram í Mörkinni, Suðurlandsbraut 64, þann 28. október kl….
Við leitum að sjálfboðaliðum í ýmis verkefni
Við tökum öllu framlagi fagnandi og af þakklæti Hvort sem það er í eitt skipti eða til lengri tíma. Verkefni geta meðal annars falist í:…


 
					 
					 
					 
					