Erla Svansdóttir sálfræðingur, Phd, hélt fræðandi fyrirlestur um sorg og tilfinningar tengdar heilsubresti í Mannréttindahúsi þriðjudaginn 17. mars. Nokkrir mættu í persónu og fjölmargir fylgdust með á streymi.
Erla snerti á mörgum hlutum eins og skilgreiningunni á klínískri heilsusálfræði og þegar lífið tekur U beygju vegna alvarlegra veikinda. Einnig fór hún í hvernig veikindi geta valdið streitu og streituviðbrögð.

Fyrirlesturinn var tekinn upp og verður sendur félagsmönnum.
Við þökkum Erlu kærlega fyrir komuna og flottan fyrirlestur.



