
Miðvikudaginn 28. janúar 2026 var Freyja Imsland með kynningu og fræðslu hjá Píeta samtökum um þær áskoranir sem fólk með ME eða langvinnt Covid er að glíma við.
Starfsfólk Píeta var mjög áhugasamt og Freyja svaraði mörgum spurningum meðal annars um líkamleg einkenni, orsakir og afleiðingar.
Freyja Imsland er doktor í erfðafræði frá Uppsalaháskóla og er fulltrúi ME félagsins í vinnuhóp landlæknis sem vinnur að betri þjónustu fyrir fólk með ME, langvinnar afleiðingar Covid, POTS eða umhverfisveikindi.
Freyja hefur verið með ME frá 2011. Sjá grein frá janúar 2025



