VIRKNIAÐLÖGUN
bók um betra líf með ME


Bókin er gagnleg öllum þeim sem kljást við veikindi sem valda miklu orkuleysi og þreytu, en er skrifuð sérstaklega með ME sjúklinga í huga.

Virkniaðlögun, fyrir betra líf með ME

Í þessari bók kynnir höfundur bókarinnar sína útfærslu á aðferð sem margir fræðimenn mæla með, t.d. höfundar greiningarviðmiða sem notuð eru fyrir ME. Um er að ræða íslenska þýðingu á norsku bókinni Aktivitetsavpassning, eftir Ingebjörg Midsem Dahl.

Bókin hjálpar fólki að stjórna daglegu lífi svo það örmagnist síður og nái þannig að lifa fyllra og meira gefandi lífi.

The book is also available in English, see information below.

Kaupa bók

Virkniaðlögun

Það er ME félagi Íslands sérstök ánægja að geta boðið félagsmönnum og öðrum að kaupa bókina sem reynst hefur mörgum ME sjúklingum gagnleg.

Kápa bókarinnar Virkniaðlögun, mynd á kápu er skraut

Vinnublöð úr bókinni er hægt að nálgast hér neðar á síðunni og prenta út.

Almennt verð bókarinnar er 5.600 kr. og verð fyrir félagsmenn er 3.200 kr., sendingargjald innanlands er innifalið. Krafa er send í netbanka, hafðu samband ef það hentar ekki.

Bókin er einnig fáanleg á ensku, sjá upplýsingar neðar

Mynd af Ingebjörg Midsem Dahl höfundi bókarinnar Virkniaðlögun, betra líf með ME

Höfundur bókarinnar

Ingebjörg Midsem Dahl fæddist árið 1979 í Osló þar sem hún býr enn í dag. Hún var greind með ME árið 1983 og hefur í mörg ár unnið að málefnum tengdum sjúkdómnum. Henni er kappsmál að kenna fólki að ná stjórn á aðstæðum sínum og forðast þannig örmögnun.

Virkniaðlögun bók

Vinnublöð úr bókinni

Pdf skjöl til útprentunar

Upplýsingar fyrir skóla

Í bókinni er kafli sem fjallar um skóla og nám. Þar er bent á grein með upplýsingum fyrir skóla, sem hefur verið þýdd yfir á íslensku.

Útgáfuhóf bókarinnar

Þann 12. maí 2019 var haldið upp á útgáfu bókarinnar á Hótel Reykjavík Natura og var félögum og öðrum boðið að halda upp á þennan áfanga félagsins.

Nokkrum fulltrúum úr heilbrigðisgeiranum var einnig boðið að mæta og þyggja eintak af bókinni að gjöf.

Mynd af fólki sitjandi við tvö hringborð í sal á Hótel Reykjavík Natura í útgáfuhófi bókarinnar Virkniaðlögun fyrir betra líf með ME

ME ráðstefna IiME í London

Jóhanna Sól Haraldsdótir, þýðandi bókarinnar, hitti Anna Louise Midsem á ME ráðstefnu IiME í London og færði henni eintak af íslenskri þýðingu bókarinnar.

Anna Louise er móðir höfundarins, Ingebjørg Midsem Dahl.

Kynning á Virkniaðlögun, bók um betra líf með ME

Félagið hélt fræðslufund 17. október 2019, þar sem þýðandi bókarinnar, Jóhanna Sól Haraldsdóttir, kynnti bókina og ræddi hvernig best sé að nota hana.

Kápa bókarinnar á norsku

Heimasíða bókarinnar á norsku

Meiri upplýsingar um bókina er að finna á norskri síðu bókarinnar. Þar er líka tengill yfir á enska síðu bókarinnar.

English version of the book

Classic Pacing: For a Better Life with ME

You can order a printed version of the book in English at Stúdentabóksalan, ISBN: 978-1999641801 or order an online version on Amazon for Kindle.

Scroll to Top