Gleðifréttir!

Heilbrigðisráðuneytið hefur veitt ME félaginu tvo styrki sem gera okkur kleift að efla starf okkar enn frekar.

• 1 milljón króna til að senda fulltrúa á tvær erlendar ráðstefnur á árinu.

• 2 milljónir króna til að halda ráðstefnu með innlendum og erlendum fyrirlesurum, áætluð í nóvember.

Ráðstefnan verður skipulögð í samstarfi við Akureyrarklíníkina, Samtök um POTS á Íslandi, SUM – samtök um áhrif umhverfis á veikindi og Ský – Félag fólks með Long Covid.

Við erum afar þakklát fyrir stuðninginn sem mun styrkja fræðslu, samvinnu og þekkingarmiðlun á þessu sviði.

Við hlökkum til að deila frekari upplýsingum þegar nær dregur.

Scroll to Top