Styrkur frá Thorvaldsenfélaginu

Á aðalfundi Thorvaldsenfélagsins þann 11. maí 2026 var ME félaginu veittur styrkur að upphæð ein milljón króna.

Við afhendingu styrksins þökkuðu Helga formaður og Ásta varaformaður ME félagsins, fyrir mikilvægan stuðning við útgáfu nýs fræðslubæklings um börn með ME og langvinnt Covid.

Í ávarpi sínu kom fram að þær Helga og Ásta væru báðar sjálfar með ME og töluðu út frá eigin reynslu um hversu krefjandi það er að lifa með sjúkdóm sem er oft ósýnilegur og misskilinn. Lögðu þær sérstaka áherslu á mikilvægi snemmgreiningar ME, bæði hjá börnum og fullorðnum, þar sem rétt greining og viðeigandi stuðningur geti skipt sköpum fyrir heilsu, lífsgæði og framtíð fólks.

Þær bentu á að styrkurinn frá Thorvaldsensfélaginu hefði gert félaginu kleift að gefa út nýjan fræðslubækling sem ætlaður er starfsfólki grunnskóla og miðar að því að auka skilning og bæta stuðning við börn með ME sjúkdóminn eða langvinnt Covid. Við það tilefni afhentu þær Thorvaldsenfélaginu prentuð eintök af bæklingnum.

Að lokum var lögð áhersla á að styrkurinn skipti ekki aðeins máli í fjárhagslegu tilliti, heldur væri hann einnig mikilvæg viðurkenning á alvarleika ME-sjúkdómsins og tákn um að fólk með ME upplifi stuðning og skilning í samfélaginu.

Scroll to Top