
Félagasamtökin Agora 3 veittu nýverið ME félagi Íslands styrk að upphæð 200.000 króna á aðalfundi sínum sem haldinn var 14. apríl á Finnsson í Kringlunni.
Agora 3 er hluti af Agora Club Iceland, sem tilheyrir alþjóðlegu hreyfingunni Agora Club International. Á Íslandi starfa tíu Agora-klúbbar með samtals 152 konum, þar sem hver klúbbur telur um 15–25 meðlimi. Lágmarksaldur í samtökunum er 42 ár og er lögð áhersla á að efla víðsýni, tengslamyndun og samfélagslega ábyrgð. Einkunnarorð Agora eru hjálpsemi og umburðarlyndi.
Ákvörðun Agora 3 um að styðja við ME félag Íslands í ár er sprottin af tengingu félagskvenna við sjúkdóminn og vilja þeirra til að leggja sitt af mörkum til aukinnar vitundar og stuðnings.
Eyrún Halla Eyþórsdóttir ritari veitti styrknum viðtöku á fundinum fyrir hönd ME félagsins. Þar var jafnframt fjallað um ME sjúkdóminn og starfsemi félagsins. Framlagið mun nýtast til áframhaldandi fræðslu og stuðnings við fólk sem lifir með ME.
Hjartans þakkir fyrir stuðninginn Agorakonur 💙



