Veik og þreytt dag eftir dag – málþing um konur sem lifa við langvinn veikindi.
ME félagið tekur þátt í þessu áhugaverða málþingi sem heilbrigðishópur ÖBÍ réttindasamtaka og Siðfræðistofnun Háskóla Íslands standa fyrir. Freyja Imsland mun flytja þar stutt erindi fyrir hönd ME félagsins.
Málþingið fer fram á Hótel Reykjavík Grand, 26. mars milli kl. 13-16.
Hægt er að sjá nánari dagskrá og skrá þátttöku í viðburðinum hér.




