Þegar hin bandaríska Jennifer Brea var 28 ára gömul var hún á toppi tilverunnar; í doktorsnámi og trúlofuð stóru ástinni í lífinu. Skyndilega veiktist hún alvarlega, fékk mikinn hita og það sem verra var – henni batnaði ekki þótt tíminn líði. Læknar sögðu henni að þetta væri ekki raunverulegur líkamlegur sjúkdómur heldur einhvers konar andleg veikindi.
Í leit sinni að svörum uppgötvaði Jen margar milljónir sjúklinga í sömu sporum – bundna við heimili sitt eða jafnvel rúmið án þess að hafa nokkra hugmynd um hvenær eða hvernig þessu ástandi lyki. Myndin lýsir leit hennar og eiginmanns hennar að lækningu og viðleitni þeirra til að til að lifa með sjúkdómnum.