12 maí 2018


Alþjóðadagur ME sjúkdómsins

MILLIONS MISSING

 er alþjóðlegur viðburður sem ætlað er að vekja athygli á ME sjúkdómnum og auka almenna þekkingu um hann.

Svart Íslandskort með rauðum punkti á Aureyri

ME félag Íslands er með í annað sinn og nú á Akureyri. Í framhaldinu er stefnt á að stofna fyrstu landsbyggðadeild félagsins, Norðurlandsdeild. 
Akureyri varð fyrir valinu því um miðja síðustu öld geysaði Akureyrarveikin sem á alþjóðavettvangi er talin til ME faraldra síðustu aldar.

Táknmynd fyrir þá sem fengu Akureyrarveikina

Skópör

Við minnumst þeirra í ár, því Akureyrarveikin sem herjaði á fólk um miðja síðustu öld er einn þekktra ME faraldra síðustu aldar.

Opinberlega voru 465 greindir með Akureyrarveikina og er eitt par fyrir hvern sjúkling. Auk þess er ekki ólíklegt að fleiri hafi verið veikir en ekki fengið formlega greiningu svo skópörin eru rúmlega 500.

Mynd af konu í viðtali

Viðtöl í tilefni dagsins

Herdís Sigurjónsdóttir varaformaður ME félags Íslands stóð fyrir skógjörningnum á Akureyri.

Hún kom fram í fjölmiðlum og ræddi þar um Akureyrarveikina, ME sjúkdóminn, vitundarvakningu og klikkuðu hugmyndina sem varð að veruleika.

Sjálfboðaliðar

Skíðakappar

Það var mikið um að vera þegar skónum var raðað í tröppur Akureyrarkirkju.

Sem betur fer komu duglegir skíðakappar til hjálpar og fyrr en varði voru 500 skópör komin á sinn stað.

Félagið var líka með bás á Glerártorgi þar sem stjórnarkonur ræddu við gesti og gangandi og settu upp nokkur skópör og spjöld með sögubrotum ME sjúklinga.

Myndband í tilefni dagsins

#MillionsMissing

#MEaction
Merki MEpedia
Scroll to Top