Viðtal mbl.is við Írisi Ösp.
„Íris Ösp greindist, eftir allmargar læknisheimsóknir og mikla vanlíðan, með POTS (e. Postural orthostatic tachycardia syndrome), sjúkdóm sem hefur áhrif á sjálfvirka taugakerfið og einkennist meðal annars af óeðlilega mikilli hækkun á hjartslætti. Níu mánuðum síðar greindist hún með ME (e. Myalgic Encephalomyelitis), taugasjúkdóm sem veldur mikilli og þrálátri örmögnun og öðrum einkennum sem gjarnan versna við minnstu áreynslu, bæði líkamlega og andlega.“
