Sumarskóli á Írlandi um samning SÞ


Námskeið á Írlandi í sumar

Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) veitir nokkrum félagsmönnum aðildarfélaga sinna styrk til þátttöku í sumarskóla um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF).

Sumarskólinn verður haldinn dagana 15. til 19. júní 2020 í National

University of Ireland, Galway (NUIG), á vesturströnd Írlands. ÖBÍ skorar á

félagsmenn aðildarfélaga sinna að sækja um styrk til ferðarinnar. Þeir sem hljóta

styrk þurfa að vera tilbúin til að nýta sér þekkingu sína á SRFF í baráttunni innan síns

aðildarfélags og/eða ÖBÍ.


Um sumarskólann
Markmið sumarskólans er að þátttakendur öðlist innsýn í SRFF og góða færni til að
nýta sér efni hans. Kennarar, leiðbeinendur og fyrirlesarar sumarskólans koma víða

að og eru m.a. fatlað fólk, aktívistar, fræðimenn og stjórnmálafólk. Allir þekkja vel til

réttinda fatlaðs fólks og hafa annað hvort komið að gerð SRFF og/eða eru þekktir

baráttumenn ásamt því að vera stjórnvöldum aðildarríkja SRFF innan handar við

innleiðingu samningsins.


Nemendahópurinn er breiður og samanstendur að jafnaði af einstaklingum frá öllum

heimsálfum sem allir eiga það sameiginlegt að vilja gera betur í réttindamálum fatlaðs

fólks og skapa gott tengslanet. Sumarskólinn gerir engar kröfur um þekkingu á

samningnum og býður alla velkomna.


Dagskrá sumarskólans 2020

Líkt og í fyrri sumarskólum er almenn kynning á ákvæðum samningsins, réttindum

sem í honum felast og hvaða þýðingu hann hefur fyrir fatlað fólk. Megináhersla

sumarskólans í ár verður á þátttöku fatlaðs fólks í menningarlífi, afþreyingu,

tómtundum og íþróttum.


Um styrk ÖBÍ

Styrkur ÖBÍ miðast við að greidd verði námskeiðsgjöld, ferðakostnaður og gisting

sem samsvarar kostnaði við gistingu á háskólasvæðinu (Campus). Jafnframt er

kostnaður greiddur vegna aðstoðarmanns fyrir þá sem þurfa á því að halda.

Umsóknir skulu berast í síðasta lagi 2. mars næstkomandi til móttöku ÖBÍ á

netfangið mottaka@obi.is á viðeigandi eyðublaði.


Undirbúningsnámskeið fyrir styrkþega

Styrkþegum gefst kostur á að sækja stutt kynningarnámskeið sem haldið verður

8. júní á vegum ÖBÍ á grunnþáttum og hugtökum SRFF sem undirbúning fyrir

sumarskólann.


Nánari upplýsingar

Þórný Björk Jakobsdóttir veitir nánari upplýsingar á netfanginu thorny@obi.is og í

síma 530 6700. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar um sumarskólann á
heimasíðu Centre for Disability Law and Policy, National University of Ireland,

Galway.

°°°°°°°°°°°°°°

Viðmið um val á umsækjendum um styrk ÖBÍ til þátttöku í sumarskóla

um SRFF í Galway, Írlandi

  1. Félagsmenn og starfsmenn aðildarfélaga geta sótt um styrk.

  2. Þeir ganga fyrir sem ekki hafa farið áður.

  3. Við val á styrkþegum er horft til hópsins í heild sem fer út með tilliti til fjölbreytileika.

  4. Ferða- og gistikostnaður vegna aðstoðarmanna eða túlka er greiddur sérstaklega og hefur ekki áhrif á val á styrkþegum.

  5. Styrkþegar þurfa að skuldbinda sig til að vera ÖBÍ innan handar við kynningu á samningnum eftir að sumarskóla lýkur.

  6. Styrkur ÖBÍ miðast við að greitt er fyrir gistingu sem samsvarar kostnaði fyrir gistingu á háskólasvæðinu sem er næst skólanum (Campus), námskeiðsgjöld og ferðakostnað.

Viðmiðin voru tekin fyrir á fundi framkvæmdaráðs 2. mars 2016 og

samþykkt á stjórnarfundi 31. mars 2016


Scroll to Top