Einkenni ME
Einkennandi fyrir sjúkdóminn eru svokölluð PEM köst (post exertional malaise) þegar einkenni versna eftir líkamlegt, félagslegt eða andlegt álag.
Önnur helstu einkenni eru yfirþyrmandi þreyta eða örmögnun, oft í kjölfar andlegrar eða líkamlegrar áreynslu; svefntruflanir, verkir, minnistruflanir, viðkvæmni gagnvart ljósi, snertingu og hljóði. Erfiðleikar við að standa lengi og stundum jafnvægistruflanir, óregla á líkamshita og líkamsþyngd. Flensulík einkenni sem vara að minnsta kosti í sex mánuði hjá fullorðnum eða þrjá mánuði hjá börnum.
Bókin Virkniaðlögun
betra líf með ME
Bókin er gagnleg öllum þeim sem kljást við veikindi sem valda miklu orkuleysi og þreytu sem og þeim sem eru með langtíma Covid, en er skrifuð sérstaklega með ME sjúklinga í huga.
Virkniaðlögun hjálpar fólki að stjórna daglegu lífi svo það örmagnist síður og nái þannig að lifa fyllra og meira gefandi lífi.
Fréttir
Decode ME hefur fundið erfðabreytileika sem auka líkur á ME
Ýmsar vísbendingar hafa verið um að ME leggist á fleiri en einn fjölskyldumeðlim, en þetta er í fyrsta sinn sem allt að átta erfðabreytileikar sem…
Að umbreyta rannsóknum í greiningar og meðferðir
Sautjánda alþjóðlega ME-ráðstefnan Invest in ME Research International ME Conference 2025 – IIMEC17 – fór fram 30. maí 2025 á Wellcome Genome Campus nálægt Cambridge…
Evrópusamtök ME sjúklinga (EMEA) hafa verið samþykkt sem fullgildur aðili að Evrópsku sjúklingasamtökunum (EPF)
ME félag Íslands er aðili að Evrópusamtökum ME sjúklinga (EMEA) og nýtur þar af leiðandi góðs af eftirfarandi tíðindum: Evrópusamtök ME-sjúklinga (EMEA) hafa verið samþykkt…
Næstu viðburðir
Aðalfundur 14. apríl 2026
Fundurinn verður 14. apríl kl. 15:00 í Mannréttindahúsinu, Oddsstofu á 1. hæð í Sigtúni 42 í Reykjavík. Fundinum verður streymt hér á Zoom. Efni fundarins: Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins.Atkvæðisrétt…
Jafningjaspjall á Zoom
Jafningjaspjall ME félagsins er fyrir fólk sem er með ME eða langvarandi einkenni Covid. Þar gefst tækifæri til að hittast á eigin forsendum, deila reynslu,…

