Einkenni ME
Einkennandi fyrir sjúkdóminn eru svokölluð PEM köst (post exertional malaise) þegar einkenni versna eftir líkamlegt, félagslegt eða andlegt álag.
Önnur helstu einkenni eru yfirþyrmandi þreyta eða örmögnun, oft í kjölfar andlegrar eða líkamlegrar áreynslu; svefntruflanir, verkir, minnistruflanir, viðkvæmni gagnvart ljósi, snertingu og hljóði. Erfiðleikar við að standa lengi og stundum jafnvægistruflanir, óregla á líkamshita og líkamsþyngd. Flensulík einkenni sem vara að minnsta kosti í sex mánuði hjá fullorðnum eða þrjá mánuðu hjá börnum.
Virkniaðlögun
betra líf með ME
Bókin er gagnleg öllum þeim sem kljást við veikindi sem valda miklu orkuleysi og þreytu sem og þeim sem eru með langtíma Covid, en er skrifuð sérstaklega með ME sjúklinga í huga.
Virkniaðlögun hjálpar fólki að stjórna daglegu lífi svo það örmagnist síður og nái þannig að lifa fyllra og meira gefandi lífi.
Fréttir
Valkröfur fyrir félagsgjaldi
Valkröfur fyrir félagsgjaldi í netbanka félagsmanna. Félagið hefur nú sent út valkröfur í netbanka, til félagsmanna sem hafa ekki nú þegar millifært félagsgjaldið á árinu….
Jólaboð 11. desember
Í desember stóð félagið fyrir jólaboði í Mannréttindahúsinu. Mæting var mjög góð og fólk mjög ánægt með samkomuna. Læknarnir Kristín og Tekla þáðu boð um…
Ræða Vilborgar Ásu Guðjónsdóttur í tilefni opnun Akureyraklíníkurinnar
Stofnun Akureyrarklíníkurinnar, þekkingar- og ráðgjafarmiðstöð um ME-sjúkdóminn og langvarandi eftirstöðvar Covid-19, var formlega sett á fót. Ræða Vilborgar Ásu Guðjónsdóttur: 8 ár Fyrir 8 árum…
Næstu viðburðir
Við leitum að sjálfboðaliðum í ýmis verkefni
Við tökum öllu framlagi fagnandi og af þakklæti Hvort sem það er í eitt skipti eða til lengri tíma. Verkefni geta meðal annars falist í:…
Vilt þú starfa í nefnd?
ME félagið vantar gott fólk í allskonar nefndir. Sendu okkur endilega tölvupóst ef þú hefur áhuga á að taka þátt. Eða ef þér er eitthað…
