Einkenni ME
Einkennandi fyrir sjúkdóminn eru svokölluð PEM köst (post exertional malaise) þegar einkenni versna eftir líkamlegt, félagslegt eða andlegt álag.
Önnur helstu einkenni eru yfirþyrmandi þreyta eða örmögnun, oft í kjölfar andlegrar eða líkamlegrar áreynslu; svefntruflanir, verkir, minnistruflanir, viðkvæmni gagnvart ljósi, snertingu og hljóði. Erfiðleikar við að standa lengi og stundum jafnvægistruflanir, óregla á líkamshita og líkamsþyngd. Flensulík einkenni sem vara að minnsta kosti í sex mánuði hjá fullorðnum eða þrjá mánuðu hjá börnum.
Virkniaðlögun
betra líf með ME
Bókin er gagnleg öllum þeim sem kljást við veikindi sem valda miklu orkuleysi og þreytu sem og þeim sem eru með langtíma Covid, en er skrifuð sérstaklega með ME sjúklinga í huga.
Virkniaðlögun hjálpar fólki að stjórna daglegu lífi svo það örmagnist síður og nái þannig að lifa fyllra og meira gefandi lífi.
Heimildamyndir og myndbönd

Fréttir
#ME er … herferð í maí
Í tilefni af alþjóðlegum degi ME vitundarvakningar 12. maí þá stóð ME félagið fyrir #ME er … herferð í maí. ME sjúklingar og aðstandendur voru…
Ný heimasíða ME félags Íslands opnuð 12. maí
ME félag Íslands hefur opnað nýja og glæsilega heimasíðu og er það sérstaklega ánægjulegt að geta opnað hana á alþjóðlegum degi ME sjúkdómsins. Við erum…
Gleym-mér-eyjar
Gleym-mér-eyjar (Forget-ME-Nots) eru táknrænar fyrir ástvini sem fólk saknar, og því hafa þær orðið alþjóðleg einkennisblóm ME-sjúkdómsins. Þær standa fyrir hverja þá mannveru sem vinir…
Næstu viðburðir
Reykjavíkurmaraþon 23. ágúst 2025
Hlaupum til góðs fyrir ME félag Íslands. Félagið gætir hagsmuna ME og LC sjúklinga – berst fyrir snemmbærri greiningu, aðgengi að réttri heilsugæslu og réttum…
Könnun í gangi á vegum ME félagsins
Það tekur aðeins um 5 mínútur að svara könnuninni. Engum persónugreinanlegum upplýsingum er safnað. Svara könnun