Einkenni ME
Einkennandi fyrir sjúkdóminn eru svokölluð PEM köst (post exertional malaise) þegar einkenni versna eftir líkamlegt, félagslegt eða andlegt álag.
Önnur helstu einkenni eru yfirþyrmandi þreyta eða örmögnun, oft í kjölfar andlegrar eða líkamlegrar áreynslu; svefntruflanir, verkir, minnistruflanir, viðkvæmni gagnvart ljósi, snertingu og hljóði. Erfiðleikar við að standa lengi og stundum jafnvægistruflanir, óregla á líkamshita og líkamsþyngd. Flensulík einkenni sem vara að minnsta kosti í sex mánuði hjá fullorðnum eða þrjá mánuði hjá börnum.
Bókin Virkniaðlögun
betra líf með ME
Bókin er gagnleg öllum þeim sem kljást við veikindi sem valda miklu orkuleysi og þreytu sem og þeim sem eru með langtíma Covid, en er skrifuð sérstaklega með ME sjúklinga í huga.
Virkniaðlögun hjálpar fólki að stjórna daglegu lífi svo það örmagnist síður og nái þannig að lifa fyllra og meira gefandi lífi.
Fréttir
Ráðstefna 15. október í Stokkhólmi
TREATING ME/CFS AND LONG COVID – OPTIONS AHEAD Afsláttur fyrir félagsmenn!!! Landssamtök ME sjúklinga í Svíþjóð halda ráðstefnu í Stokkhólmi 15. október í samstarfi við…
#ME er … herferð í maí
Í tilefni af alþjóðlegum degi ME vitundarvakningar 12. maí þá stóð ME félagið fyrir #ME er … herferð í maí. ME sjúklingar og aðstandendur voru…
Ný heimasíða ME félags Íslands opnuð 12. maí
ME félag Íslands hefur opnað nýja og glæsilega heimasíðu og er það sérstaklega ánægjulegt að geta opnað hana á alþjóðlegum degi ME sjúkdómsins. Við erum…
Næstu viðburðir
Jafningjaspjall á Zoom
Jafningjaspjall ME félagsins er fyrir fólk sem er með ME eða langvarandi einkenni Covid. Þar gefst tækifæri til að hittast á eigin forsendum, deila reynslu,…
Við leitum að sjálfboðaliðum í ýmis verkefni
Við tökum öllu framlagi fagnandi og af þakklæti Hvort sem það er í eitt skipti eða til lengri tíma. Verkefni geta meðal annars falist í:…

