|
|
|
|
|
|
|
Herferð í tilefni af alþjóðlegum degi vitundarvakningar um ME - 12. maí
|
|
|
Hafin er ný auglýsinga- og samfélagsmiðlaherferð með myllumerkinu #MErkilegt. Herferðin var unnin í samvinnu við Hvíta húsið auglýsingastofu.
|
|
Frá 7. til 12. maí birtast auglýsingar á Rás 1, Rás 2, Bylgjunni, mbl, vísi, Facebook og Instagram.
|
|
Í dag 12. mun herferðin ná hámarki og bætast þá við auglýsingar á nokkrum áberandi umhverfisskiltum við götur og í strætóskýlum.
|
|
|
|
|
|
|
|
Nýr fræðslubæklingur er kominn úr prentun.
|
|
Dreifing er hafin til allra kennara og starfsmanna í grunnskólum. Akureyrarklíníkin, Barnaspítali Hringsins, Bugl, Domus barnalæknar, Heimili & skóli, Sjónarhóll og fleiri munu einnig fá eintök. Bæklingurinn er einnig kominn á netið og hefur m.a. Félag barnalækna samþykkt að dreifa honum í fjölpósti til sinna félagsmanna.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Myndmerki félagsins var hannað af Stefaníu Þorsteinsdóttur
|
|
Merkinu hefur nú verið breytt í góðu samráði við hönnuðinn og það einfaldað í takti við örar breytingar í stafrænu umhverfi og til að aðlaga það minni stærðum. Samhliða því hefur verið sett upp síða um merkið.
|
|
|
|
|
|
|
|
Styrkur frá Thorvaldsenfélaginu
|
|
Á aðalfundi Thorvaldsenfélagsins þann 11. maí 2026 var ME félaginu veittur styrkur að upphæð ein milljón króna til útgáfu á fræðslu um börn með ME sjúkdóminn eða langvinnt Covid.
|
|
|
|
|
|
|
|
Eins og að sökkva í kviksyndi
|
|
Góð og áhrifarík umfjöllun á RÚV um Sigurbjörgu J. Helgadóttur. Hún segir frá rúmlega fjögurra ára baráttu sinni við Long Covid, örmögnun og hvernig sjúkdómurinn hefur haft gríðarleg áhrif á heilsu hennar og daglegt líf.
|
|
|
|
|
|
|
|
Býrð þú á eða í nágrenni við Akureyri?
|
Long Covid / ME hópur hittist reglulega í Sölku félagsmiðstöð fólksins, í Víðilundi. Öllum sem eru að glíma við þessi erfiðu veikindi er velkomið að bætast í hópinn.
|
Jafningjastuðningur er ómetanlegur og getur hjálpað ótrúlega mikið, sérstaklega á erfiðum tímum.
|
Fyrsta miðvikudag í mánuði kl. 10:00
|
|
Þriðja miðvikudag í mánuði kl. 13:00
|
|
|
|
|
|
|
Agora 3 veittu nýverið ME félagi Íslands styrk að upphæð 200.000 króna
|
Eyrún Eyjólfsdóttir ritari ME félagsins tók á móti styrknum á aðalfundi Agora sem haldinn var 14. apríl á Finnsson í Kringlunni. Á Íslandi starfa tíu Agora-klúbbar með samtals 152 konum, þar sem hver klúbbur telur um 15–25 meðlimi.
|
|
|
|
|
|
|
|
Fulltrúar ME félags Íslands sóttu stefnuþing ÖBÍ réttindasamtaka
|
|
Þingið fór fram á Hilton Reykjavík Nordica þann 17. apríl. Fyrir hönd félagsins mættu Helga Edwardsdóttir formaður, Eyrún Halla Eyþórsdóttir ritari og Jóhanna Sigurða Ágústsdótttir gjaldkeri.
|
|
|
|
|
|
|
|
Freyja Imsland hélt erindi fyrir hönd ME félagsins á málþinginu „Veik og þreytt, dag eftir dag“
|
|
Þingið var á vegum ÖBÍ og Siðfræðistofnunar HÍ, um konur með langvinn veikindi. Freyja varpaði í erindi sínu ljósi á hversu djúpstæð áhrif sjúkdómurinn hefur á daglegt líf og lífsgæði fólks sem lifir með ME.
|
|
|
|
|
|
|
|
Nýtt fólk í stjórn ME félagsins
|
Á aðalfundi félagsins þann 14. apríl fór fram kosning til stjórnar. Guðmundur Ingi Guðbrandsson var kosinn nýr í stjórn og Ragnhildur Guðmundsdóttir var kosin sem nýr varamaður í stjórn.
|
|
Félagið býður þau velkomin til starfa.
|
|
|
|
|
Með kærri kveðju,
stjórnin
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|