Athugið: Fyrirlesturinn er langur og getur verið krefjandi. Mælt er með að hlusta í köflum og taka hlé eftir þörfum.
Heilsan okkar – Langvinn einkenni COVID
Þessi fræðslufundur er annar í fundaröðinni Heilsan okkar haustið 2025 og fór fram í Veröld – húsi Vigdísar, föstudaginn 31. október kl. 11:30–13:00.
Markmið fundarins er að veita heildstæða yfirsýn yfir langvinn einkenni COVID frá mörgum sjónarhornum, meðal annars líkamlegum, andlegum og félagslegum.
Umsjón og ritstjórn: Jóhanna E. Torfadóttir
Fundarstjóri: Guðrún Aspelund, sóttvarnalæknir
Dagskrá
- Friðbjörn Sigurðsson, læknir
Í ljósi sögunnar – átti langvinnt COVID að koma á óvart? - Ingibjörg Magnúsdóttir, doktorsnemi í lýðheilsuvísindum
Langvinn andleg, líkamleg og vitræn einkenni COVID: rannsóknir í alþjóðlega COVIDMENT samstarfinu - Karl Kristjánsson, yfirlæknir Reykjalundi
Langvinn einkenni eftir COVID – er ávinningur af endurhæfingu? - Sigurveig Þ. Sigurðardóttir, yfirlæknir ofnæmislækninga á Landspítala
Ónæmiskerfið og langvinn einkenni COVID - Steinunn Gestsdóttir, prófessor í sálfræði
Í klónum á COVID - María Heimisdóttir, landlæknir
Stuðningur við sjúklinga – rétt þjónusta á réttum stað - Pallborð – umræður
Heilsan okkar er fundaröð á vegum Háskóla Íslands og Landspítala sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar sem varða heilsu og heilbrigðisþjónustu. Fundirnir eru öllum opnir og fara fram síðasta föstudag hvers mánaðar.



