Jafningjaspjall ME félagsins er fyrir fólk sem er með ME eða langvarandi einkenni Covid. Þar gefst tækifæri til að hittast á eigin forsendum, deila reynslu, spjalla saman og njóta félagsskapar, án pressu og með fullum skilningi á þeim takmörkunum sem fylgja veikindunum.
Spjallið fer fram á Zoom annan hvern fimmtudag kl. 13:15-14:00 og stendur í 45 mínútur. Fundarstjóri leiðir spjallið af stað. Engin skylda er að vera með mynd eða taka til máls; þú ákveður sjálf/ur hvernig þér líður best að taka þátt hverju sinni.
Við vitum að margir komast ekki á staðbundna viðburði. Þess vegna leggjum við áherslu á að jafningjaspjallið sé aðgengilegt, sveigjanlegt og hlýlegt.
Skráning er mjög einföld og nægir að skrá sig einu sinni. Þá færð þú sjálfkrafa sendar upplýsingar í tölvupósti.
👉 Skráning fer fram hér:
Í jafningjaspjallinu gilda skýr gildi: virðing, jákvæðni og trúnaður.
Velkomin í Jafningjaspjallið 💙
Athugið að spjallið er eingöngu ætlað fólki sem er með eða telur sig vera með ME eða langvarandi Covid.


