Fyrirspurnir á Alþingi um ME

Gísli Rafn Ólafsson lagði fram tvær skriflegar fyrirspurnir á Alþingi um ME, annars vegar til heilbrigðisráðherra og hins vegar til mennta- og barnamálaráðherra. Fyrirspurnirnar lúta að fræðslu, stuðningi, greiningu og stöðu fólks með ME, þar á meðal barna innan skólakerfisins.

Alþingi ME félag Íslands

„Embætti landlæknis hefur ekki upplýsingar um fjölda einstaklinga sem greindir hafa verið með ME-sjúkdóminn.“

Um fyrirspurnirnar og svörin

Í fyrirspurnunum er meðal annars spurt um fræðslu til heilbrigðisstarfsfólks, kennara og skólastjórnenda, stuðning við börn með ME og hvernig einstaklingar með grun um ME eigi að leita sér greiningar. Einnig er óskað eftir upplýsingum um fjölda þeirra sem greinst hafa með ME hér á landi.

Í svörum ráðherra kemur fram að ekki séu til miðlægar upplýsingar um fjölda barna eða einstaklinga sem greinst hafa með ME. Einnig kemur fram að ekki hafi verið gerðar sérstakar áætlanir um fræðslu eða aukinn stuðning sérstaklega vegna ME, þótt vísað sé til almennra umbóta og áframhaldandi þróunar innan kerfanna.

Svörin varpa ljósi á stöðu mála í mennta- og heilbrigðiskerfinu og hversu mikilvægt er að efla þekkingu, stuðning og þjónustu fyrir fólk með ME.

Scroll to Top