
Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á fræðsluerindi þriðjudaginn 17. mars kl 14.00 í Mannréttindahúsi, Sigtúni 42 og á Zoom.
Erla Svansdóttir, sálfæðingur, PhD, mun fjalla um sorg og tilfinningar tengdar heilsubresti og deila reynslu sinni af sálfræðiþjónustu á LSH. Megin áhersla í starfi Erlu felst í að hjálpa sjúklingum að skilja og takast á við sálfræðileg viðbrögð eftir alvarleg líkamleg veikindi, leggja mat á líðan og sálfræðilega þætti.
Tími verður fyrir spurningar og opnar umræður. Fundurinn verður tekinn upp og aðgengilegur félagsmönnum eftir á.
Við vonumst til að sjá sem flesta.


