
Lífið eftir Covid varð aldrei samt aftur.
Sigurbjörg J. Helgadóttir ræðir opinskátt í viðtali við RÚV um lífið með Long Covid og hvernig veikindin hafa breytt tilverunni. Hún lýsir því hvernig einföld verkefni geta orðið yfirþyrmandi og hversu erfitt getur verið að halda í vonina á erfiðum dögum.
Í umfjölluninni talar Sigurbjörg einnig um mikilvægi skilnings, stuðnings og þess að fólk með ósýnileg veikindi þurfi ekki stöðugt að sanna vanlíðan sína
Greinina má finna á RÚV.is og neðst á síðunni er einnig hægt að hlusta á viðtalið við Sigurbjörgu í Fyrst á fætur á Rás 2.



