
Freyja Magnúsdóttir og Pétur Þór Jónasson kalla eftir aukinni þjónustu fyrir ME-sjúklinga
Á Akureyri.net er fjallað um grein hjónanna Freyju Magnúsdóttur og Péturs Þórs Jónassonar þar sem þau kalla eftir aukinni þjónustu og stuðningi fyrir fólk með ME.
Í greininni lýsa þau reynslu sinni sem aðstandendur og fjalla um alvarleg áhrif sjúkdómsins á daglegt líf. Þau leggja áherslu á mikilvægi þess að koma á fót þekkingar- og ráðgjafarmiðstöð fyrir ME-sjúklinga við sjúkrahúsið á Akureyri og benda á að þörfin sé brýn.
Umfjöllunin birtist á Akureyri.net



