Aðalfundur 14. apríl 2026

Fundurinn verður 14. apríl kl. 15:00 í Mannréttindahúsinu, Oddsstofu á 1. hæð í Sigtúni 42 í Reykjavík. 

Fundinum verður streymt hér á Zoom.  

Efni fundarins: 

Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins.

Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa þau sem eru skráð í félagið og hafa greitt félagsgjald fyrir árið 2026 eigi síðar en viku fyrir aðalfund.

Upplýsingar um félagsgjöld

Í ár skal kjósa 3 aðalmenn og 1 varamann í stjórn til tveggja ára. Framboð til stjórnar skal tilkynna til ME félagsins eigi síðar en viku fyrir aðalfund með því að senda tölvupóst á mefelag@mefelag.is. Framboði skal fylgja fullt nafn, kennitala og símanúmer.

ME félagið er hagsmunafélag sjúklinga og aðstandenda þeirra. Mikilvægt er að stjórn og nefndir séu skipaðar úr þessum hópum, en einnig er þeim sem hafa sérfræðiþekkingu eða brennandi áhuga á málefnum félagsins velkomið að gefa kost á sér. Hægt er að taka þátt í öllum fundarstörfum á netinu.

Einnig er óskað eftir framboðum/sjálfboðaliðum í ýmsar nefndir eins og t.d.:
Nefnd fyrir Foreldrafélagið / UngME
Nefnd fyrir vitundarvakningu á Langvinnu Covid
Nefnd fyrir Reykjavíkurmaraþon
Nefnd fyrir alþjóðlegan dag vitundarvakningar um ME
Nefnd fyrir Akureyri og nágrannasveitarfélög
Nefndir fyrir aðra landshluta

Framboð í nefndir má tilkynna til félagsins í tölvupósti fyrir 14. apríl eða í eigin persónu á aðalfundi.

Dagskrá aðalfundar
skv. 6. grein laga félagsins

a) Kosning fundarstjóra og fundarritara
b) Skýrsla stjórnar
c) Endurskoðaðir ársreikningar félagsins lagðir fram
d) Umræður og afgreiðsla á skýrslu stjórnar og ársreikning
e) Upphæð árgjalds ákveðin
f) Lagabreytingar
g) Kosning stjórnar skv. 9. grein
h) Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
i) Kosning nefnda
j) Önnur mál

Með góðri kveðju, stjórn ME félags Íslands
Scroll to Top