Fyrsti fræðslufundur félagsins

Fyrsti fundurinn var haldinn í safnaðarheimili Grensáskirkju og var ágætlega sóttur. Þar var félagið kynnt og sagt frá fyrstu ráðstefnunni sem fulltrúar félagsins sóttu erlendis. Einnig var sagt frá þremur rannsóknum sem voru ofarlega á baugi um þær mundir.

Dagskrá fundarins

Fyrst var litið aðeins á félagið sjálft, út á hvað það gengur, hvað hefur gerst hingað til og að hvaða stærri bandalögum félagið tilheyrir:

  • Stofnun félagsins 12. mars 2011
  • Aðili að Öryrkjabandalag Íslands
  • Aðili að Europian ME Alliance
  • Aðili að Nordic ME Network

Svo var farið yfir fimm fyrirlestra frá “Invest in ME” ráðstefnunni í frá því í fyrra. Þeir voru miklu fleiri og allir mjög áhugaverðir. Við ræddum þessa á mánudaginn:

  • Rannsókn um orsakir ME
  • Þolpróf sem sýnir fram á PENE (post exertional neuroimmune exhaustion)
  • Hallapróf sem sýnir fram á frávik í taugakerfi og blóðþrýstingi
  • Þarmaflóran sem virðist hafa mikið að segja
  • Stytt útgáfa af ICC greiningunni á ME (umræða um greiningar)

Að lokum voru kynntar þrjár mikilvægar rannsóknir um ME sem eru að hefjast um þessar mundir:

  • Örverur í meltingarvegi
  • END CFS/ME (hvorki meira né minna)
  • Rituximab rannsókn í Noregi (lyf)

Það var mjög gaman að hittast og spjalla og við viljum gjarnan hafa fleiri svona fundi/hittinga.

Scroll to Top