
Mady Hornig sem leiddi rannsóknina

Frumuboðar er samheiti yfir hormón sem ákveðnar frumur ónæmiskerfis og taugakerfis gefa frá sér.
Það hefur reynst mjög erfitt að finna lífmerki fyrir ME (biomarkers) og rannsakendur veltu fyrir sér hvað gæti valdið því.
Hugsanlega hefði það eitthvað að segja að greiningarviðmið sem notuð eru til að velja viðföng í rannsóknir eru ekki alltaf eins sem og vinnulag innan rannsóknastofa. Einnig var hugað að því hvort það hefði eitthvað að segja hvenær sýni voru tekin frá sjúklingum, þ.e.a.s. á hvaða stigi sjúkdómsins.
Í framhaldinu voru gögn úr tveimur rannsóknum tekin til gagngerrar skoðunar og ónæmisfrávik rannsökuð í tengslum við sjúkdómsgreiningu, lengd veikinda, mismunandi árstíðir, staðsetningu (landfræðilega), aldur og kyn.
Niðurstaðan sýnir greinilegar breytingar í ónæmisþáttum í blóði á fyrri stigum sjúkdómsins séu þeir bornir saman við heilbrigð samanburðarviðföng. Þessar breytingar sjást ekki hjá þeim sem hafa verið veikir lengur.
Það sjást greinilegar breytingar á frumuboðum (cytokines) á fyrstu stigum sjúkdómsins, þ.e.a.s. fyrstu þrjú árin. Bæði aukin virkni ákveðinna frumuboða sem tengjast bólgum og einnig truflun á samskiptum þeirra.
Það var ljóst að breytingar á frumuboðum tengdust frekar því hve lengi sjúklingurinn hafði verið veikur en hve alvarleg veikindin urðu. Það bendir til þess að undirliggjandi sjúkdómsþættir ME eru ekki stöðugir. Þessi niðurstaða gefur mikilvægar vísbendingar svo finna megi aðferðir til að grípa inn í ferlið og jafnvel greina ME fyrr.
Lesa meira um rannsóknina á:
- PubMed (febrúar 2015)
- Science Advances (febrúar 2015)
- The Wall Street Journal,
- Fréttavef BBC,
- The New York Times
- Á vef Cort Johnson.
Rannsakendur
Meðal þeirra sem að rannsókninni stóðu voru nokkrir helstu sérfræðingar á sviði ME enda vakti rannsóknin mikla athygli og þykir marka ákveðin tímamót:
- Mady Hornig
- José G. Montoya
- Nancy G. Klimas
- Susan Levine
- Donna Felsenstein
- Lucinda Bateman
- Daniel L. Peterson
- C. Gunnar Gottschalk
- Andrew F. Schultz
- Xiaoyu Che
- Meredith L. Eddy
- Anthony L. Komaroff
- W. Ian Lipkin
Viðföng
- 52 sjúklingar (veikir skemur en 3 ár)
- 246 sjúklingar (veikir lengur en 3 ár)
Samtals 298 sjúklingar
Til samanburðar: 348 heilbrigðir einstaklingar
Niðurstöðurnar eru svo afgerandi að vísindamennirnir gátu greint, út frá rannsóknargögnum, 52 sjúklinga sem höfðu haft sjúkdóminn í minna en 3 ár.