
Markmið: Að enda M.E./ Síþreytu og Long Covid
Stefnt er að því að fá 2x það fjármagn sem heilbrigðis-yfirvöld í USA hafa hingað til lagt fram til að skoða alla þætti ME upp á nýtt og finna lausn.
Ron Davis PhD stýrir verkefninu en hann á son sem er með sjúkdóminn á mjög alvarlegu stigi.
Ron hefur verið í forsvari fyrir Erfðarannsóknarstöð Stanford háskóla í tuttugu ár. Hann er meðal annars þekktur fyrir að hafa uppgötvað aðferð til að kortleggja genamengi sem leiddi til þess að Human Genome Project varð að veruleika (stærsta, alþjóðlega samvinnuverkefni læknisfræðinar sem snerist um að kortleggja allt genamengi mannsins). Á meðal verðlauna sem hann hefur hlotið eru: Eli Lilly, Distinguished CIT Alumni, NAS verðlaunin og verðalaun Dickson, Gruber og Warren Alpert stofnunarinnar). Hann hefur birt yfir 500 rannsóknir í vísindatímaritum (einn mesti birtingafjöldi vísindamanns sem um getur).
Þátttakendur
- Mark Davis PhD – (170+ birtingar í vísindatímaritum). Rekur eigin rannsóknarstofu í Stanford.
- Mario Capecchio PhD – (200+ birtingar í vísindatímaritum) sameinda-genafræðingur, Nóbelsverðlaunahafi og Lazker verðlaunahafi.
- Craig Heller PhD (150 + birtingar í vísindatímaritum) – Stanford þjálfunar-lífeðlisfræðingur
- Baldomero M. Olivera PhD – (300+ birtingar í vísindatímaritum) – taugafræðingur frá Utah háskóla
- Ron Tompkins MD, ScD – (350+ birtingar í vísindatímaritum) hefur rutt veginn í skilningi á bólgusjúkdómum.
- Andreas Kogelnik MD, PhD – ME/síþreytusérfræðingur og stofnandi Opnu Læknisfræðistofnunarinnar.
- James Watson PhD – Nóbelsverðlaunahafinn sem ásamt Francis Crick, uppgötvaði form DNA sameindarinnar.