Einkenni ME

Einkennandi fyrir sjúkdóminn eru svokölluð PEM köst (post exertional malaise) þegar einkenni versna eftir líkamlegt, félagslegt eða andlegt álag.

PEM köst

PEM eru einkennandi fyrir sjúkdóminn og geta komið fram allt að þremur sólarhringum eftir líkamlegt, félagslegt eða andlegt álag og getur varað frá nokkrum klukkustundum upp í margar vikur og geta í sumum tilfellum valdið varanlegri versnun á einkennum.

Teikning af manneskju sem liggur í rúmi

Önnur helstu einkenni ME

eru yfirþyrmandi þreyta, oft í kjölfar andlegrar eða líkamlegrar áreynslu; svefntruflanir, verkir, minnistruflanir, viðkvæmni gagnvart ljósi, snertingu og hljóði; erfiðleikar við að standa lengi og stundum jafnvægistruflanir, óregla á líkamshita og líkamsþyngd; flensulík einkenni sem vara að minnsta kosti í sex mánuði hjá fullorðnum eða þrjá mánuði hjá börnum.

Hvítar teiknaðar útlínur á dökkum bakgrunni. Horft er niður á rúm með manneskju í.

Listi yfir einkenni

Dr. Katrina Berne, sem sérhæfir sig í ME útbjó langan lista sem sjúklingar geta notað til hliðsjónar þegar þeir meta ástand sitt. Hægt er að fylla hann út á nokkurra mánaða fresti og jafnvel fara með til læknisins.

Hér er hluti af listanum. Hlekkur neðst á allan listann á ensku.

Notaðu skalann 1-10 yfir hve alvarleg einkennin eru, 1 er vægast og 10 er verst. 0 þegar einkenni eru ekki til staðar.

  • Þreyta sem versnar við andlegt eða líkamlegt álag
  • Virkni hefur minnkað a.m.k. um helming síðan fyrir veikindi
  • Endurtekin flensulík einkenni
  • Særindi í hálsi
  • Hæsi
  • Bólgnir eitlar í hálsi eða handakrikum
  • Mæði við litla áreynslu eða enga
  • Advarpa oft
  • Skjálfti eða titringur
  • Ofnæmi í nefi (nýlegt eða hefur versnað)
  • Hósti
  • Nætursviti
  • Vægur hiti
  • Oft kalt
  • Oft heitt
  • Kaldir útlimir
  • Lágur líkamshiti
  • Lágur blóðþrýstingur (undir 110/70)
  • Þungur hjartsláttur
  • Þurrkur í augum eða munni
  • Aukinn þorsti
  • Einkenni versna við breytingu á hitastigi
  • Einkenni versna við flugferðir
  • Einkenni versna við álag

Scroll to Top