12. maí 2026


Alþjóðadagur ME sjúkdómsins

#MErkilegt herferð

Þann 7.-12. maí stóð félagið fyrir vitundarvakningarherferð með myllumerkinu #MErkilegt

Á því tímabili birtust auglýsingar á Rás 1, Rás 2, Bylgjunni, mbl, vísi, Facebook og Instagram. 12. maí bættust svo við auglýsingar á nokkrum áberandi umhverfisskiltum við götur og í strætóskýlum.

Einnig birti félagið auglýsingar á Instagram og Facebook þessa daga.

Plaköt hengd upp í fyrirtækjum og stofnunum

Hér má sjá myndband af því þegar auglýsingastofan Hvíta húsið fór fyrir hönd ME félags Íslands í fyrirtæki og stofnanir og hengdi upp plaköt í tilefni alþjóðlegs dags vitundarvakningar um ME. Víða um Reykjavík má nú sjá plaköt tengd herferð félagsins undir myllumerkinu #MErkilegt.

Umhverfisskilti víða um höfuðborgarsvæðið

Víða um höfuðborgarsvæðið má nú sjá umhverfisskilti tengd #MErkilegt herferð ME félags Íslands. Skiltin voru sett upp í tengslum við vitundarvakningu um ME og vekja athygli á einkennum og áhrifum sjúkdómsins.

Nýr fræðslubæklingur – Börn með ME sjúkdóminn eða langvinnt Covid

Nýr fræðslubæklingur ,,Börn með ME sjúkdóminn eða langvinnt Covid kom úr prentun og byrjað var að vinna í því að dreifa honum til allra kennara og starfsmanna í grunnskólum.

Akureyrarklíníkin, Barnaspítali Hringsins, Bugl, Domus, Heimili og skóli, Ráðgjafar- og greiningarstöð og Sjónarhóll munu einnig fá eintök. Bæklingurinn er einnig kominn á netið og hefur m.a. Félag barnalækna samþykkt að dreifa honum í fjölpósti til sinna félagsmanna.

Reykjavíkurborg og Thorvaldsenfélagið styrktu útgáfu þessa bæklings.

Útgáfan var unnin í góðu samstarfi við Akureyrarklíníkina.

Scroll to Top