Fuglinn er táknmynd fyrir sjúklinginn og þá staðreynd að sjúkdómurinn sést sjaldnast utan á honum. Hann er í bláum einkennislit ME á alþjóðavísu.
Hringirnir sýna þau fjölmörgu einkenni sem halda sjúklingnum niðri og íþyngja honum þegar hann hvað eftir annað reynir að taka flugið og halda lífi sínu áfram. Þrátt fyrir það gefst hann ekki upp, hann heldur höfði sínu hátt og býr sig enn einu sinni til flugs.
Merkið var einfaldað lítillega árið 2026 í takti við örar breytingar í stafrænu umhverfi og til að aðlaga það minni stærðum. Umsjón hafði Hvíta húsið.
Hér fyrir neðan er upprunalega merki félagsins.




