Í þessu erindi á alþjóðlegri ME/CFS ráðstefnu 2025 kynnir Friðbjörn Sigurðsson Akureyrarklíníkina, sem er sérhæfð landsklíník fyrir fólk með ME/CFS og langvinnt Covid á Íslandi.
Íslenskan texta má virkja í myndbandinu með Settings → Subtitles → Auto-translate → Icelandic.
Akureyrarklíníkin og staða ME/CFS á Íslandi
Í erindinu fjallar Friðbjörn um Akureyrarklíníkina og hlutverk hennar í þjónustu við fólk með ME/CFS og langvinnt Covid á Íslandi. Hann fer yfir að heiti klíníkarinnar sé dregið af ME/CFS faraldri sem kom upp á Akureyri á árunum 1948–1949 og hafði áhrif á nærri 500 manns.
Einnig er fjallað um þá stöðu að fólk með ME/CFS á Íslandi hafi lengi búið við skort á læknisþjónustu, líkt og víða annars staðar í Evrópu. Frá stofnun klíníkarinnar í ágúst 2024 hafa um 400 sjúklingar fengið þjónustu hjá þverfaglegu teymi níu starfsmanna.
Friðbjörn bendir jafnframt á að enn skorti mannafla og rannsóknarúrræði til að byggja upp miðlæga sjúkraskráningu og efla rannsóknir á sviðinu. Þrátt fyrir það hafi orðið framfarir í vitundarvakningu og auknum skilningi á stöðu fólks með ME/CFS.
Að lokum undirstrikar hann að hægt sé að læra margt af skipulagi og uppbyggingu þjónustu innan annarra sérgreina, meðal annars í krabbameinslækningum, til að bæta þjónustu við fólk með ME/CFS.



