
Helga Edwardsdóttir formaður ME félags Íslands og Sigríður Elín Ásgeirsdóttir formaður Ský – Félags fólks með Long Covid gagnrýna að Læknafélagið líti framhjá áhrifum Long Covid og ME á fjölgun örorku eftir heimsfaraldur.
Viðeigandi endurhæfing er ekki í boði fyrir þennan hóp og úrræði skorti. Fullyrðingar um fjárhagslega hvata séu rangar og einfölduð mynd af stöðunni. Ákall er eftir faglegri greiningu og uppbyggingu sérhæfðra úrræða í stað þess að kenna bótakerfinu um.



