
Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á fræðsluerindi fimmtudaginn 26. febrúar kl. 13:00–14:15 á Zoom.
Ragnheiður Harpa Arnardóttir, sjúkraþjálfari við Akureyrarklíníkina mun deila reynslu sinni og leiðbeiningum um endurhæfingu sem tekur mið af raunverulegum einkennum ME og langvinnu Covid.
Fjallað verður m.a. um:
• Örmögnun eftir áreynslu (PEM) og hvernig má forðast bakslag
• Orkustjórnun og virkniaðlögun (pacing)
• Að finna og virða eigin orkumörk
• Hlutverk sjúkraþjálfara í meðferð ME og LC.
Tími verður fyrir spurningar og opnar umræður. Fundurinn verður tekinn upp og aðgengilegur félagsmönnum eftir á.
Við vonumst til að sjá sem flesta.


