Gagnleg öpp, vefsíður og tól


Margt getur einfaldað lífið og sparað orku. Stutt innkaupaferð getur orsakað PEM kast og stundum er einfaldlega engin orka til staðar til að elda.

Spörum orkuna!!!

Gagnleg öpp, vefsíður og tól

APP

Heimsend lyf hjá Lyfju

Í Lyfju appinu getur þú verslað lyfseðilsskyld lyf og fengið þau send frítt heim í stærstu þéttbýlisstöðum landsins eða sótt í næsta apótek Lyfju þegar þér hentar. Í Lyfju appinu getur þú einnig verslað hjúkrunar- og heilsuvörur og fengið sendar heim.

APP og vefur

Heimsend lyf hjá Apótekaranum

Apótekarinn býður upp á heimsendingu á lyfjum og öðrum vörum víðsvegar um landið. Hægt að fá sent heim samdægurs ef pöntun berst fyrir kl. 12, annars næsta virka dag.
Heimsendingar eru í boði á eftirtöldum stöðum:
Höfuðborgarsvæðinu, Akureyri, Hveragerði og í Reykjanesbæ.

Þjónusta

Frí heimsending hjá Lyfjaveri

Á vef Lyfjavers getur þú verslað lyfseðilsskyld lyf og aðrar vörur og fengið þau send frítt heim ef pantað er fyrir yfir 9.900 kr.

APP

Krónuappið

Heimsending og hægt að samræma innkaupalisti. Velja afhendingardag og afhendingartíma. Kaupa það sama og síðast með einum smell. Girnirlegar uppskriftir og innihaldið sett í körfuna með einum smell.

APP

Heimsending

Heimsending frá veitingastöðum og verslunum. Allt sem þú elskar, heimsent — Gæddu þér á bragðgóðum mat frá bestu stöðum bæjarins, heimsent til þín á augabragði. Bestu veitingastaðirnir í bænum, komnir til þín heim í sófa.

APP

Heimsending

Með Aha.is appinu getur þú á einfaldan hátt pantað mat á fjölmörgum íslenskum veitingastöðum og vörur úr verslunum. Aha sendir heim að dyrum til þín.

APP

Noona tímabókanir

Markaðstorg fyrir þjónustu og upplifanir. Með einu appi getur þú bókað tíma hjá helstu þjónustufyrirtækjum landsins á einum og sama staðnum.

APP

Leigubifreið – Taxi

Með Hreyfils appið í símanum þínum, getur þú pantað leigubíl í örfáum skrefum. Þegar appið er gangsett þarftu að búa til reikning og skrá þig inn. Möguleiki er gefin á innskráningu með tölvupósti eða símanúmeri.

Merki Landspítalans

App

Landsspítalaappið

Landspítalaappið er smáforrit í boði Landspítala. Í appinu birtast upplýsingar er varða dvöl þína á spítalanum.

APP

Einkennadagbók

Fljótleg og auðveld leið til að hafa eftirlit með einkennum fyrir öll langvarandi heilsufarsvandamál eða raskanir. Fylgstu með hvað fær einkenni til að batna eða versna til að finna út úr betri leiðum til að stjórna heilsu þinni og vellíðan.

APP

Hugleiðsla

Headspace appið hefur hundruði hugleiðslur til að velja úr. Hér lærir þú að hugleiða rétt, sofa betur, stjórna streitu, læra öndunaraðferðir til að létta hversdagskvíða, slaka á, ná ró og bæta andlega líðan.

APP

Simple hof öndunaræfingar

Viltu styrkja ónæmiskerfið?
Viltu njóta góðrar heilsu?
Viltu vera í góðu skapi?
Viltu vera full af orku?
Viltu auka sköpunargáfu þína?
Tileinkaðu þér þá Wim Hof öndun.

APP

Storytel

Hundruðir þúsunda raf- og hljóðbóka. Mikið úrval íslenskra bóka.

App, vefur og vefvarp

Hljóðbókasafn Íslands

Hljóðbókasafn Íslands gerir efni aðgengilegt og miðlar því til fólks sem glímir við blindu, sjónskerðingu, lesblindu eða aðra prentleturshömlun.
ATH þarf vottorð frá lækni til að fá aðgang að Hljóðbókasafninu. 

Vefur

Píeta samtökin

Taka öllum með opnum örmum sem hafa samband.

Píeta samtökin reka hjálparsíma allan sólarhringinn, alla daga ársins.

Ráðgjafar veita öllum þeim sem hringja ráðgjöf, bóka í viðtal eða vísa í önnur úrræði, sé þess þörf.

APP

Aðstoð við daglegt fjölskyldulíf

FamilyWall hjálpar til við að ná utan um daglegt líf fjölskyldunnar með því að deila dagskrá og athöfnum allra, fylgjast með innkaupalistum, skipuleggja kvöldmat, stjórna verkefnum sem og finna börn þegar þau eru úti.

APP

Tilfinningalosandi æfingar

SomaShare var stofnað til að styðja við heilunarferð þína með því að veita þér aðferðir sem þú getur stundað daglega til að lækna og stjórna taugakerfinu þínu.

APP

Samræmdur innkaupalisti

Gleymdu aldrei listanum þínum heima og veistu alltaf nákvæmlega réttu hlutina til að fá. Bættu mjólk við innkaupalistann og félagi þinn sér það strax – jafnvel þótt hann sé nú þegar að versla í búðinni!

APP

Minnislistar, áminningar og allskyns utanumhald

Google Keep er notað af mörgum til að halda utan um alla listana, til að punkta hjá sér og margt fleira.

APP

Daglegt orkustjórnun fyrir fólk með ME

Þetta app er hannað til að hjálpa fólki með væga til miðlungsmikla ME/CFS að stjórna daglegri orkunotkun sinni betur til að bæta lífsgæði þeirra.

Tengt efni

UngME

Tilgangur UngME er að styðja við ungt fólk með ME og aðstandendur þeirra.

Lesa meira um ME og ungt fólk

ME sögurnar okkar

Hér gefst vettvangur til að deila sögu sinni og að læra af sögum annarra.

Lesa ME sögurnar okkar

Senda inn þína ME sögu

Þú getur sent ME félagi Íslands þína sögu og bætt henni í sagnabankann okkar.

Senda inn þína ME sögu

Viðtöl, greinar og heimildarmyndir

Samansafn efnis frá ýmsum áttum þar sem fjallað er um ME sjúkdóminn.

Lesa viðtöl, greinar og heimildarmyndir

Scroll to Top