Heilsan okkar fræðslufundur: Langvinn einkenni Covid

Athugið: Fyrirlesturinn er langur og getur verið krefjandi. Mælt er með að hlusta í köflum og taka hlé eftir þörfum.

Heilsan okkar – Langvinn einkenni COVID

Þessi fræðslufundur er annar í fundaröðinni Heilsan okkar haustið 2025 og fór fram í Veröld – húsi Vigdísar, föstudaginn 31. október kl. 11:30–13:00.

Markmið fundarins er að veita heildstæða yfirsýn yfir langvinn einkenni COVID frá mörgum sjónarhornum, meðal annars líkamlegum, andlegum og félagslegum.

Umsjón og ritstjórn: Jóhanna E. Torfadóttir
Fundarstjóri: Guðrún Aspelund, sóttvarnalæknir


Dagskrá

  • Friðbjörn Sigurðsson, læknir
    Í ljósi sögunnar – átti langvinnt COVID að koma á óvart?
  • Ingibjörg Magnúsdóttir, doktorsnemi í lýðheilsuvísindum
    Langvinn andleg, líkamleg og vitræn einkenni COVID: rannsóknir í alþjóðlega COVIDMENT samstarfinu
  • Karl Kristjánsson, yfirlæknir Reykjalundi
    Langvinn einkenni eftir COVID – er ávinningur af endurhæfingu?
  • Sigurveig Þ. Sigurðardóttir, yfirlæknir ofnæmislækninga á Landspítala
    Ónæmiskerfið og langvinn einkenni COVID
  • Steinunn Gestsdóttir, prófessor í sálfræði
    Í klónum á COVID
  • María Heimisdóttir, landlæknir
    Stuðningur við sjúklinga – rétt þjónusta á réttum stað
  • Pallborð – umræður

Heilsan okkar er fundaröð á vegum Háskóla Íslands og Landspítala sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar sem varða heilsu og heilbrigðisþjónustu. Fundirnir eru öllum opnir og fara fram síðasta föstudag hvers mánaðar.

Scroll to Top