Share this emailCopy the public link or share it on your favorite channel.
Kæri félagi,

Það er ánægjulegt að tilkynna að nægilega mörg framboð bárust til stjórnarsetu.

Í ár skal kjósa 3 aðalmenn og 1 varamann í stjórn til tveggja ára.

Í framboði til stjórnar eru:

Ásta Þórunn Jóhannesdóttir, sem hefur átt sæti í stjórn síðastliðinn tvö ár og verið varaformaður félagsins undanfarna 12 mánuði.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson fyrrverandi félagsmálaráðherra. Hann hefur verið að liðsinna stjórn félagsins undanfarna mánuði með fjáröflun sem hefur skilað góðum árangri.

Jóhanna Sigurða Ágústsdóttir, sem hefur átt sæti í stjórn sl 4 ár og verið gjaldkeri félagsins.

Í framboði til varamanns er:

Ragnhildur Guðmundsdóttir sálfræðingur og kennari, hún hefur verið að liðsinna félaginu með fræðsluefni tengdu börnum og ungmennum og er fulltrúi félagsins í barnamálefnahóp hjá ÖBÍ.

Enn er hægt að gefa kost á sér í ýmsar nefndir með því að senda tölvupóst á mefelag@mefelag.is.

Sjá upplýsingar um nefndir og dagskrá aðalfundar hér fyrir neðan.

Með kærri kveðju,
stjórnin

Stund:

Þriðjudaginn 14. apríl kl. 15:00

Staður:

Oddsstofa í Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42, 105 Reykjavík

Fundinum verður einnig streymt!!!

Dagskrá aðalfundar

skv. 6. grein laga félagsins

a) Kosning fundarstjóra og fundarritara
b) Skýrsla stjórnar
c) Endurskoðaðir ársreikningar félagsins lagðir fram
d) Umræður og afgreiðsla á skýrslu stjórnar og ársreikning
e) Upphæð árgjalds ákveðin
f) Lagabreytingar
g) Kosning stjórnar skv. 9. grein
h) Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
i) Kosning nefnda
j) Önnur mál

Efni fundar:

Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins.

Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa þau sem eru skráð í félagið og hafa greitt félagsgjald fyrir árið 2026 eigi síðar en viku fyrir aðalfund.
Upplýsingar um félagsgjöld

Í ár skal kjósa 3 aðalmenn og 1 varamann í stjórn til tveggja ára. Framboð til stjórnar skal tilkynna til ME félagsins eigi síðar en viku fyrir aðalfund með því að senda tölvupóst á mefelag@mefelag.is.Tilkynningu um framboð þarf að fylgja fullt nafn, kennitala og símanúmer.

ME félagið er hagsmunafélag sjúklinga og aðstandenda þeirra. Mikilvægt er að stjórn og nefndir séu að einhverju leyti skipaðar úr þessum hópum, en einnig er öðrum sem hafa áhuga á málefnum félagsins velkomið að gefa kost á sér. Hægt er að taka þátt í öllum fundarstörfum á netinu.

Einnig er óskað eftir framboðum/sjálfboðaliðum í ýmsar nefndir eins og til dæmis:
  • Nefnd fyrir Foreldrafélagið / UngME
  • Nefnd fyrir vitundarvakningu á Langvinnu Covid
  • Nefnd fyrir Reykjavíkurmaraþon
  • Nefnd fyrir alþjóðlegan dag vitundarvakningar um ME
  • Nefnd fyrir Akureyri og nágrannasveitarfélög
  • Nefndir fyrir aðra landshluta
Framboð í nefndir má tilkynna til félagsins í tölvupósti fyrir 14. apríl eða í eigin persónu á aðalfundi.
Með kærri kveðju,
stjórnin
Mannréttindahúsið
Sigtúni 42, 105 Reykjavík
mefelag.is
Sími 497 0201
facebook instagram youtube bluesky tiktok linkedin threads x 
Styrkja félagið