Long Covid

FRÉTTATILKYNNING
Long Covid Rocks, steinvala eftir steinvölu
Í tilefni af alþjóðlegum Long Covid degi þann 15. mars, tekur ME félagið þátt í alþjóðlega átaksverkefninu Long Covid Rocks út mánuðinn. Það er gert til að vekja athygli á alvarlegum áhrifum Long Covid, meðal annars á börn. Markmið átaksins er að draga fram í dagsljósið þær áskoranir sem börn með Long Covid standa frammi fyrir. Auk þess að bæta skilning almennings og hvetja hið opinbera til aðgerða.
Börn föst heima vegna Long Covid
Eftir Covid-19 hafa börn glímt við langvarandi veikindi sem hindra þau í að sækja skóla og taka þátt í daglegu lífi. Þau eru mörg hver föst heima eða í sérúrræðum vegna veikinda sinna. Þrátt fyrir alvarleika málsins hefur umfjöllun og viðurkenning á vandanum verið takmörkuð. Það skortir mikið á aðgerðum til stuðnings þessum börnum.
Hvernig virkar Long Covid Rocks?
ME félagið hvetur almenning til að taka þátt í átakinu með eftirfarandi hætti:
● Mála steina og skrifa á þá uppbyggjandi skilaboð eða setningar sem vekja athygli á Long Covid, t.d. „Long Covid skiptir máli“, „Börn með Long Covid“ eða „Sýnum stuðning“.
● Skilja steinana eftir á almannafæri, svo sem í almenningsgörðum, við skóla eða göngustíga. Það er gert til að vekja athygli á málefninu og skapa umræðu.
● Deila myndum af steinum sem þú staðsetur eða rekst á, á samfélagsmiðlum með myllumerkjunum:
Af hverju skiptir þetta máli?
Long Covid er alvarlegt heilbrigðisvandamál sem hefur haft veruleg áhrif á líf fjölda barna og fjölskyldna þeirra. Skilningur á stöðu þessara barna er mjög takmarkaður og úrræði á vegum þess opinbera fá. Mörg þessara barna og fjölskyldur þeirra þurfa að berjast fyrir viðurkenningu á veikindunum.
Með þátttöku í Long Covid Rocks vill ME félagið vekja athygli á þessum alvarlega vanda, auka umræðu og stuðla að breytingum í samfélaginu.
Allir geta tekið þátt!
Með því að mála stein, deila upplýsingum eða ræða málið við vini og fjölskyldu er hægt að vekja þannig athygli á málefninu. Það styður við þá sem glíma við langvarandi afleiðingar af Covid-19.
Stjórn ME félags Íslands
Comments