Virkniaðlögun er íslensk þýðing á norsku bókinni Aktivitetsavpassning eftir Ingebjörg Midsem Dahl.
Þótt þessi bók sé skrifuð með ME sjúklinga í huga er hún gagnleg öllum sem kljást við einhver veikindi sem valda miklu orkuleysi og þreytu. Höfundurinn kynnir hér sína útfærslu á aðferð sem margir fræðimenn mæla með, t.d. höfundar greiningarviðmiða sem notuð eru fyrir ME. Virkniaðlögun hjálpar fólki að stjórna daglegu lífi svo það örmagnist síður og nái þannig að lifa fyllra og meira gefandi lífi.
Bókin er 297 blaðsíður og í A-4 stærð.
Verð bókarinnar er 5.600 krónur. Burðargjald Póstsins er innifalið í verðinu.
Félagsaðild árið sem bókin er keypt getur fylgt með, ef þess er óskað. Sendið nafn, kennitölu og netfang til okkar hér með “Félagsaðild með bók” í skilaboðum.
Bókin er aðeins seld á vefsíðunni.


