Næst í verkefnaröð vinnuhóps landlæknis er að skoða þjónustuúrræði fyrir fólk með langvinnt Covid, ME, POTS og aðra skylda sjúkdóma. Aðstandendur eru einnig hvattir til þess að taka þátt í könnuninni.
|
Í samvinnu við Samtök um POTS á Íslandi, Ský - Félag fólks með Post Covid og SUM samtök um áhrif umhverfis á heilsu, hefur verið sett upp stutt könnun sem væri mikils virði að þú gæfir þér tíma til að svara.
|
|
Upplýsingum verður safnað saman og komið á framfæri á næsta fundi vinnuhóps landlæknis sem haldinn verður vikuna fyrir jól.
|
|