ME félag Íslands

Jólapsjall skraut

Jóla-jafningjaspjall á Zoom

11. desember klukkan 13:15 - 14:00

Desember getur verið krefjandi tími og sum okkar komast ekki á viðburði á þessum annasama árstíma. Þess vegna langar okkur að bjóða þér í notalegt jóla-jafningjaspjall á Zoom þar sem við getum hist á okkar eigin forsendum, spjallað saman og notið félagsskapar heima.

Til að gera stundina enn skemmtilegri höfum við fengið frábært tilboð frá Brikk bakarí: 50% afslátt og ókeypis heimsendingu ef pantað er í gegnum Wolt með kóðanum: MEBRIKKJOL
Kóðinn gildir allan daginn og er óháður þátttöku í spjallinu.

Fullkomið til að næla sér í eitthvað gott meðlæti með spjallinu. Því miður þá tókst ekki að semja við heimsendingaraðila utan höfuðborgarsvæðisins en það skal takast að ári. Við biðjumst velvirðingar á því.

Sem fyrr mun fundarstjóri leiða spjallið af stað en að þessu sinni munu öll í stjórn sem hafa heilsu til, taka þátt. Þátttakendum í spjallinu er hvorki skylt að vera í mynd né með hljóðið á; þú velur hvernig þér hentar best að taka þátt.

Þú þarft eingöngu að skrá þig ef þú hefur ekki skráð þig áður í Jafningjaspjallið. Þú færð sjálfkrafa sendan Zoom hlekk í tölvupósti. Athugið að spjallið er eingöngu fyrir fólk sem er með eða telur sig vera með ME eða LC.
Við hlökkum til að sjá þig á Zoom og eiga saman notalega jólastund og við þökkum Brikk hjartanlega fyrir framlagið.
Með kærri kveðju,
stjórnin
Mannréttindahúsið
Sigtúni 42
105 Reykjavík
mefelag.is
Sími 497 0201