|
|
|
|
|
Við eigum von á hellingi af fólki til að hvetja þig áfram. Hér eru upplýsingar þar um og fleira.
15 hlauparar hafa skráð sig og áheit eru komin vel fram úr okkar væntingum. Við erum svo innilega þakklát fyrir þinn stuðning og þá miklu vitundarvakningu sem þú og við sköpum í kringum svona góðgerðarhlaup.
|
|
Ef þú vilt þá getur þú sent okkur myndir eða stutt myndbönd af undirbúningi og hlaupadeginum í Facebook skilaboðum eða merkja @mefelagislands í Sögu/Story á Instagram og við munum deila á samfélagsmiðlum, svo þau sem komast ekki geti fylgst með.
|
|
|
|
|
Hvatningarstöð
|
Hvatningarstöð félagsins verður við hringtorgið á Sóleyjargötu og verður hún mönnuð á milli klukkan 7:30-10:00. Myndin gefur hugmynd um sjónarhorn hlaupara af hvatningarstöðinni.
|
|
|
|
|
|
|
Flöggin verða tvö og eru 2,40 metrar á hæð, þú ættir því auðveldlega að geta séð efsta hlutann með fuglinum í mannmergðinni.
|
|
|
|
Það væri gaman ef þú gætir staðsett þig sem næst gangstétt hægra megin svo við eigum auðveldara með að sjá þig á meðal hlaupara.
|
|
|
|
|
|
Skiltakeppni -Við tökum að sjálfsögðu þátt með þessu fallega þakkar skilti. Verðlaun verða veitt að hlaupi loknu. Keppnin nær til allra hlaupaleiða!
|
|
|
|
ME félags bolir - Síðustu bolir voru settir í póst hjá Íslandspósti fimmtudaginn 14. ágúst, þú ættir því að fá bolinn vel tímanlega fyrir hlaup.
|
|
|
|
|
Hvatningarfólk við endamark
|
Við munum biðja hvatningarfólkið okkar að flytja sig að endamarki um klukkan 9:50 þegar síðustu hlauparar eru farnir framhjá hvatningarstöðinni. Við munum taka vel á móti þér þar.
|
|
|
|
|
Þessi hafa ásamt þér skráð sig til hlaups fyrir ME félagið.
|
|
|
|
|
|
|
Við óskum þér góðs gengis í lokaundirbúningi og í hlaupinu sjálfu.
|
Með miklu þakklæti og kærri kveðju fyrir hönd stjórnar,
|
|
Helga Edwardsdóttir formaður
|
|
|
|
|
|
|
|
|