Reykjavíkurmaraþon

Hvatningarstöð - Dagskrá - Rástímar hlaupara

Kæri félagi, við gleðjumst yfir öllum sem koma að hvetja hlauparana. Fyrir þau sem ekki komast er líka hægt að senda hlý orð á samfélagsmiðlum, deila maraþonsíðu hlaupara eða sýna stuðning með áheiti.

Verum dugleg að taka myndir og stutt vídéo á hlaupadeginum, senda félaginu jafnóðum í Facebook skilaboðum eða merkja @mefelagislands í Sögu/Story á Instagram og við munum deila á samfélagsmiðlum, svo þau sem komast ekki geti fylgst með.

Hvatningarstöð verður opin 8:00 – 10:00


Hvatningarstöð félagsins verður við hringtorgið á Sóleyjargötu. Myndin gefur hugmynd um sjónarhorn hlaupara.
Flöggin verða tvö og eru 2,40 metrar á hæð, hlauparar ættu því auðveldlega að geta séð efsta hlutann með fuglinum í mannmergðinni.

Gott verður í boði Nóa Síríus.
Mælt er með að þau sem eiga erfitt með að standa komi með koll eða útilegustól með sér en ef einhver gleymir sér, þá verða fjögur sæti á staðnum.

Hlaupaleiðir - Á korti má sjá allar og einstaka hlaupaleiðir.
Skiltakeppni -Við tökum að sjálfsögðu þátt með þessu fallega þakkar skilti. Verðlaun verða veitt að hlaupi loknu. Keppnin nær til allra hlaupaleiða!
ME félags bolir - Síðustu bolir voru settir í póst hjá Íslandspósti fimmtudaginn 14. ágúst, það ættu því öll að vera búin að fá bolina sína tímanlega fyrir hlaup.

Dagskrá fyrir hvatningarfólk

08:00 – Hvatningarstöð opnar

08:30 – 10:00 Hlauparar hlaupa framhjá hvatningarstöð

10:00 – Hvatningarstöð lokar

10:00 – 12:00 Flytja sig að endamarki, sem er fyrir neðan Menntaskólann í Reykjavík og taka vel á móti hlaupurunum okkar. Athugið að það er mikið fjör bæði fyrir framan og aftan endamarkið.

12:00 – 12:15 Fylgjast með hlaupurum í skemmtiskokki leggja af stað frá Sóleyjargötu og hlaupa yfir brúnna yfir tjörninni.

12:15 – 15:00 Flytja sig að endamarki, sem er fyrir neðan Menntaskólann í Reykjavík og taka vel á móti hlaupurunum okkar.
Hvernig er best að komast að hvatningarstöð? Sjá kort með upplýsingum um hvenær hvaða götur eru lokaðar.
8:30
Maraþon
keppnisflokkur
Jonas Berglund
8:30
Hálfmaraþon
keppnisflokkur
Ástþór Eydal Friðriksson
Sigurjón Hólm Magnússon
8:40
Hálfmaraþon
almennur flokkur
María Mist Tómasdóttir
9:30
10 km
keppnisflokkur
Guðmunda Þórunn Þorvarðardóttir

Með kærri kveðju,

stjórnin

Mannréttindahúsið
Sigtúni 42
105 Reykjavík
facebook instagram youtube bluesky tiktok vimeo linkedin threads twitter