Fréttabréf ME félags Íslands

Merki ME félags Íslands

Góðan dag

Í tilefni af Reykjavíkurmaraþoni hefur félagið sett kynningarmyndaband í dreifingu á samfélagsmiðlum.


Við viljum einnig vekja athygli á nýjum bolum í tilefni af maraþoninu, sem fara í framleiðslu 23. júlí. Hlauparar frá FRÍA boli

Hér er hægt að fylgjast með hlaupurum félagsins og áheitum þeirra. Veist þú um fleiri sem vilja hlaupa? Skrá hlaupara

Frumniðurstöður frá David Systrom
Samantekt: fólk með ME (og með LC) hefur færri hvatbera í vöðvum en er eðlilegt. Þetta er ekki meðfætt, heldur fækkar hvatberum eftir upphaf sjúkdómsferlis. Eftir því sem rannsókninni vindur fram, fæst betri innsýn í hvað gerist í vöðvum fólks með ME við líkamlega áreynslu.
Íris Ösp lögfræðingur og rithöfundur ræðir meðal annars um ME og POTS veikindi sín og óvinnufærni - viðtal á RÚV
Íris veiktist alvarlega fyrir tæplega sex árum síðan. Umræðan um veikindin hefjast á mín. 8 og 20 sek
„Eins og að búa með draugum í eigin líkama“ - viðtal við Björn Elí á RÚV
"Svoleiðis er ME fyrir marga, eins og að búa með draugum í eigin líkama. Lífið heldur áfram fyrir utan gluggann en maður festist innra með sér í þoku, þreytu, hugsunum og verkjum sem toga mann niður.“

Okkar góði liðsmaður,

Unnar Erlingsson gaf félaginu góðfúslegt leyfi til að birta myndir á samfélagsmiðlum, sem hann hannaði fyrir ME vitundarvakningu 2025 og þökkum við honum kærlega fyrir það.

Að lokum viljum við minna á könnun félagsins!!!

Af hverju er mikilvægt að taka þátt?

Þá vitum við til dæmis betur:
  • Hversu langan tíma það getur tekið að fá greiningu.
  • Hvort það sé marktækur munur á milli kynja í afgreiðslu á umsóknum um örörku.
  • Hvort það sé verið að hafna mörgum um nauðsynleg hjálpartæki.
Athugið!!!
Eingöngu innskráðir Google notendur geta svarað könnuninni. Það er gert til að takmarka þátttöku við eitt skipti.
Beðist er velvirðingar á því.

Með kærri kveðju,

stjórnin

Mannréttindahúsið
Sigtúni 42
105 Reykjavík
facebook instagram youtube bluesky tiktok vimeo