Kröfur fyrir félagsgjaldi 2026 hafa verið stofnaðar hjá þeim sem eru skráð í áskrift að þeim, utan þeirra sem eru búin að greiða á þessu ári.

Athugið að félagið má ekki senda kröfur til félaga nema þau hafi skráð sig í áskrift. Þetta á líka við um þau sem eru búin að vera í félaginu til margra ára.


Fékkst þú enga kröfu í bankann?


Þá biðjum við þig vinsamlegast að skrá þig í áskrift að félagsgjaldi.
Til hvers að vera félagi?


Með því að greiða félagsgjald styrkir þú starf félagsins og verður fullgildur félagi með tillögu- og atkvæðisrétt á aðalfundi.


Félagið vinnur að bættri þjónustu fyrir fólk með ME eða langvinnt Covid í samstarfi við hið opinbera, veitir ráðgjöf og útbýr og dreifir fræðsluefni til félagsmanna, aðstandenda og velunnara, sem og til heilbrigðisstarfsfólks og annarra opinberra starfsmanna, svo sem starfsfólks í skólum.

Félagið stendur einnig fyrir ýmsum fyrirlestrum og kynningum sem er streymt til félagsmanna.

💙 Takk fyrir stuðninginn — saman stöndum við sterkari

Áskriftarleiðin sparar félaginu heilmikla vinnu og fyrirhöfn. Ef sú leið hentar þér alls ekki er þó hægt að millifæra 2.500 kr. beint inn á reikning félagsins.


Kennitala: 650311-2480
Reikningur: 0133 15 011535
Ef þú hefur einhverjar spurningar, ekki hika við að hafa samband!

Með kærri kveðju,
stjórnin og starfsfólk
Mannréttindahúsið
Sigtúni 42, 105 Reykjavík
Sími 497 0201
mefelag.is
facebook instagram youtube bluesky tiktok linkedin threads x 
Styrkja félagið